Steindinn okkar

- Country
- Iceland
How it feels
A sketch comedy series from Iceland where each episode ends with a music video. The show follows main performer Steindi Jr. through a variety of comic scenes and featured many well-known Icelandic actors and musicians.
comedicenergeticplayfulfast-pacedquirkyinformalupbeatwhimsical
What happens
Steindinn okkar er íslenskur sjónvarpsþáttur sem var sýndur á Stöð 2. Alls voru gerðar þrjár þáttaraðir og var Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., í aðalhlutverki í þeim öllum, enda þættirnir við hann kenndan. Fyrsti þátturinn var sýndur 30. apríl 2010, og sá síðasti 11. október 2012. Þættirnir voru sketsaþættir (sketch show) og endaði hver þáttur á tónlistarmyndbandi. Fyrst um sinn skrifuðu Ágúst Bent Sigbertsson, leikstjóri þáttanna, og Steinþór Hróar Steinþórsson handritið, en síðar bættist Magnús Leifsson í hópinn og skrifaði með þeim aðra og þriðju þáttaröð. Steinþór Hróar Steinþórsson fer alltaf með aðalhlutverk í skensunum, en mikið af leikurum og þekktum aðilum hafa komið fram í þáttunum. Ber þar helst að nefna Erpur Eyvindarson, Dóri DNA, Bergur Ebbi Benediktsson, Davíð Guðbrandsson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Ólafur Ásgeirsson, María Guðmundsdóttir, Guðrún Ester Árnadóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Snorri Engilbertsson. Lög úr þáttunum hafa sum verið mjög vinsæl og fengið mikla útvarpsspilunn. Má meðal annars nefna Geðveikt fínn gaur, Djamm í kvöld, Gull af mönnum, Dansa það af mér og Nóttin er ung. Oftast hafa Redd Lights og StopWaitGo unnið lögin með Steindanum okkar. Einnig hafa Ólafur Arnalds, Danni Deluxe, Berndsen, Gísli Pálmi og Ljósvaki unnið að tónlist fyrir þættina. Árið 2011 kom úr geisladiskurinn, Án djóks samt djók, með lögum úr þáttaröð númer eitt og tvö. (from Wikipedia, CC BY-SA)
More like this
- Punkturinn
- Mannasiðir Gillz
- Hraðfréttir
- Tekinn
- Ameríski draumurinn
- Auddi og Sveppi
- Búbbarnir
- Hreinn Skjöldur
Browse movies and series
press Enter to search by title, your filters still apply · for something by mood, tap Discover
Lists: Korean thrillers worth the evening · Anime films beyond Studio Ghibli · Slow films for a rainy night · Horror that unsettles instead of startling · Series you can finish in a weekend · Nordic crime worth the subtitles · Good films that end in under 90 minutes · Documentaries that play like thrillers
Loading movies…