Underplayed Gems
The whole movie catalogue

Films and series, searchable by what they are

← Back to the shop

Stundin okkar

Stundin okkar poster
Country
Iceland

How it feels

This is the oldest Icelandic TV series still airing, a children's program that has been shown on Sunday evenings since 1966. It mixes segments from schools and theaters with imported content, hosted by a presenter and early on by a popular puppet character named Krummi.

nostalgicgentlewhimsicalwarmfamily-friendlyconversationalslow-pacedlighthearted

What happens

Stundin okkar er barnaþáttur sem er sýndur á RÚV á sunnudögum klukkan 18 (6). Fyrsti þátturinn var sendur út á aðfangadag 1966 skömmu eftir stofnun sjónvarpsins. Stundin okkar er elsti íslenski sjónvarpsþátturinn sem enn er sendur út. Hann hefur lengst af verið sendur út um klukkan sex síðdegis á sunnudögum og tekið 40-50 mínútur í útsendingu. Fyrstu árin var sunnudagshugvekja send út í kortér klukkan sex og síðan tók Stundin okkar við fram að íþróttum klukkan sjö. Fyrsti umsjónarmaður Stundarinnar okkar var Hinrik Bjarnason kennari og síðar dagskrárstjóri. Strax í febrúar 1967 urðu Rannveig og Krummi (Rannveig Jóhannsdóttir og Sigríður Hannesdóttir) fastur liður í öðrum hverjum þætti og svo vinsæl að flestir tengja þau við þessi fyrstu ár fremur en Hinrik. Krummi var handbrúða sem Hinrik hafði keypt í Þýskalandi. Frá upphafi byggðist þátturinn á blönduðum atriðum frá grunnskólunum, leikhúsunum og aðkeyptu erlendu efni sem stjórnandi þáttarins kynnti fyrir áhorfendum. Eftir Krumma settu margar brúður svip sinn á þáttinn: Fúsi flakkari kom fram í þáttum Kristínar Á. Ólafsdóttur og Klöru Hilmarsdóttur 1969 til 1970, Glámur og Skrámur (Halli og Laddi) komu fram í þáttum Ragnheiðar Geirsdóttur og Björns Þórs Sigurbjörnssonar 1972 og síðan aftur við og við í mörg ár á eftir, og Páll Vilhjálmsson (Gísli Rúnar Jónsson) kom fram með Sirrý í atriðum sem voru skrifuð af Guðrúnu Helgadóttur. Fjöldinn allur af brúðum kom fram í þáttum Helgu Steffensen 1987 til 1994 og Keli köttur (Steinn Ármann Magnússon) var félagi Ástu Hrafnhildar Garðarsdóttur 1997 til 2001. Leiknar persónur sem voru þróaðar sérstaklega fyrir þáttinn voru einkenni á þáttum Bryndísar Schram 1979 til 1983 þar sem Þórhallur Sigurðsson leikari þróaði margar af þekktustu persónum sínum, s.s. Eirík Fjalar og Þórð húsvörð. Elías (Sigurður Sigurjónsson) var með atriði skrifuð af Auði Haralds í þáttum Ásu Ragnarsdóttur og Þorsteins Marelssonar frá 1983 til 1985. Gunni og Felix léku samnefndar persónur í þáttum sínum 1994 til 1996 en Þóra Sigurðardóttir og Jóhann G. Jóhannsson gengu skrefinu lengra árið 2002 og bjuggu til persónurnar Birtu og Bárð sem sáu um kynningar í þættinum að hluta. Frá 2006 - 2008 hefur allur þátturinn byggst á samhangandi leiknum atriðum, Ævintýri Stígs og Snæfríðar leikin af Ívari Erni Sverrissyni og Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur, sem eru skrifuð af Leynifélaginu ehf. (Þorgeiri Tryggvasyni, Ármanni Guðmundssyni, Snæbirni Ragnarssyni og Sævari Sigurbjörnssyni). Frá 2008-2011 sá Björgvin Franz Gíslason um þættina ásamt Önnu Svövu Knútsdóttur. Frá 2011-2013 sá Þóra Birna Ingvarsdóttir um þáttinn. Frá 2013-2016 sá Guðjón Davíð Karlsson um þáttinn. Frá 2016-2019 sá Sigyn Blöndal um þáttinn. Frá 2019 hafa börn stjórnað stundinni okkar og í aðalhlutverkum þau Lúkas Emil Johansen og Erlen Ísabella Einarsdóttir. (from Wikipedia, CC BY-SA)

More like this

This page is from Underplayed Gems. Not quite it? Tell the Catbot what you feel like watching and it picks from the whole catalogue, or browse by genre, country and year.

Lists: Korean thrillers worth the evening · Anime films beyond Studio Ghibli · Slow films for a rainy night · Horror that unsettles instead of startling · Series you can finish in a weekend · Nordic crime worth the subtitles · Good films that end in under 90 minutes · Documentaries that play like thrillers

Loading movies…

What should I watch?